Tenglar

15. mars 2016 |

Vefur um sameiginlegt svæðisskipulag

Opnaður hefur verið vefur þar sem birtar eru margvíslegar upplýsingar um sameiginlegt svæðisskipulag Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar og fréttir sagðar eftir því sem verkinu vindur fram. Með gerð svæðisskipulags fyrir sveitarfélögin þrjú vilja þau festa í sessi sameiginlega framtíðarsýn á þróun svæðisins.

 

Með því að greina tækifæri sem búa í auðlindum og sérkennum svæðisins og móta á þeim grunni markmið í atvinnumálum, samfélagsmálum og umhverfismálum og síðan skipulagsstefnu sem styður við þau, eru væntingar um að ná meiri árangri en ella þegar tekist er á við sameiginlegar áskoranir sem við blasa í byggðamálum, eins og segir í kynningarorðum.

 

Markmiðið er að með tíð og tíma leiði starfið til:

  • Aukinnar samvinnu sveitarfélaganna um eflingu atvinnulífs og byggðar – með því að móta sameiginlega framtíðarsýn og markmið til að vinna eftir og forgangsraða samstarfsverkefnum og verkefnum sveitarfélaganna á þeim grunni.
  • Sterkari sjálfsmyndar samfélaga á svæðinu og aukinnar samheldni þeirra – með því að greina tengsl íbúa við sitt svæði og draga þau fram í stefnumótuninni.
  • Skýrari ímyndar svæðisins og aukins aðdráttarafls gagnvart ferðamönnum, nýjum íbúum, fyrirtækjum og fjárfestum – með því að skýra sérkenni svæðisins og marka stefnu sem styrkir þau og nýtist jafnframt fyrirtækjum í ferðaþjónustu og öðrum atvinnugreinum til vöruþróunar og markaðssetningar.
  • Nýrra fyrirtækja, þjónustu og vöru sem byggja á sérkennum og auðlindum svæðisins – með því að draga fram, ræða og gera aðgengilegar upplýsingar um auðlegð svæðisins og tækifæri sem í henni búa.
  • Aukins fjármagns til svæðisbundinna verkefna og annarra verkefna sem falla að sameiginlegri langtímasýn svæðisins í svæðisskipulaginu – með því að setja einstök verkefni í stærra samhengi í tíma og rúmi.

 

Kynnið ykkur málið og nýja vefinn hér.

 

Sjá einnig hér (fréttir á vef Reykhólahrepps).

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31