Tenglar

1. október 2016 | Umsjón

Vefur um staðarkennd og staðaranda í Reykhólahreppi

Anna Björg Ingadóttir.
Anna Björg Ingadóttir.
1 af 4

Anna Björg Ingadóttir grunnskólakennari hefur búið til magnaðan vef um Reykhólahrepp og fólkið í héraðinu. Heiti hans er Reykhólahreppur - vefur um staðarkennd og staðaranda í Reykhólahreppi. Anna Björg á hingað ættir að rekja og kenndi við Reykhólaskóla tvö síðustu skólaár. Núna er hún á lokasprettinum í mastersnámi í hagnýtri þjóðfræði og vefurinn hennar er hluti af lokaverkefninu þar. Þarna er meðal annars að finna fjölda mynda og myndasafna af fólki og viðburðum sem Anna Björg hefur tekið víða í héraðinu, einnig myndskeið með viðtölum við fólk hér og þar á svæðinu.

 

Í kafla um aðdragandann að þessum vef segir Anna Björg: 

  • Sumarið 2014 réð ég mig í sumarvinnu vestur á Reykhóla á litla sýningu og kaffihús sem heitir Báta- og hlunnindasýningin. Hvers vegna Reykhólar? Jú, ég er ættuð í föðurætt úr Reykhólahreppi, afi var úr Þorskafirði og amma úr Flatey á Breiðafirði og hef ég í gegnum tíðina dvalið í sumarbústað foreldra minna „Kríunni“ í Þorskafirði og skotist í búð og sund á Reykhóla. Ég vissi að ég ætti skyldmenni í hreppnum en þekkti fáa.
  • Þegar ég hóf störf á sýningunni var mér vel tekið og ég fann að ég var sérstaklega velkomin vegna tengsla minna við hreppinn. Svo fór að mér var boðin kennarastaða við grunnskólann ásamt íbúð og eftir stutta umhugsun og von um betri tíð flutti ég með yngri börnin mín tvö úr Mosfellsbæ og vestur á Reykhóla. Þegar ég kom vestur kviknaði fljótlega sú hugmynd að vinna lokaverkefni sem vefsíðu um samfélagið í Reykhólahreppi.
  • Ég tel vefsíðuformið kjörið til að koma stemmningu Reykhólasamfélagsins á framfæri. Þetta er lifandi form, hægt er að lagfæra, breyta og bæta við eftir þörfum og áhorfandinn getur hlustað á og skoðað innihaldið eftir áhuga og þegar hann vill. Hann getur verið hvar sem er í heiminum, jafnvel bara með símann sinn. Það eina sem þarf er tæki með nettengingu.
  • Markmið mitt með verkefninu er að fanga stemningu og staðaranda Reykhólahrepps og staðarkennd fólksins sem býr þar eða bjó áður. Hvers vegna vill fólk búa í þessu samfélagi? Hvaða sögur, minningar og reynsla tengja íbúana í hreppnum og ekki bara þá sem hafa fasta búsetu á svæðinu heldur einnig þá sem eru brottfluttir af ýmsum ástæðum en hugsa um Reykhólahrepp sem staðinn sinn og þegar þeir hugsa „heim“ þá er það einhver staður í Reykhólahreppi sem fær hjartað til að slá.
  • Með því að taka myndbandsviðtöl við fólkið í stað hefðbundins viðtals næ ég að fanga augnablikið betur, áhorfandinn fær að „þreifa“ á stemningunni og sjá allt sem var til staðar þegar viðtalið var tekið og getur virkjað fleiri skynfæri við áhorf. Ekki er alltaf hægt að fanga glettnina, brosið, angurværðina eða jafnvel sorgina í orðum á prenti en það er hægt á myndbandi. Eins má segja að viss skrásetning fari fram sjónrænt; tíska, heimilisbúnaður, hár og klæðnaður. Vefsíðan verður þannig safn af mismunandi minningum, sögum og frásögnum á mismunandi formi.

 

Um verkefnið sjálft segir Anna Björg meðal annars: 

  • Verkefnið er 30 eininga lokaverkefni í Hagnýtri þjóðfræði og samanstendur af ritgerð og vefsíðu. Ég lagði af stað í þessa vegferð uppfull af hugmyndum og draumum. Vefsíðan átti að sýna brot af samfélaginu í Reykhólahreppi, hvernig fólk býr þarna, hvað gerir það, borðar, áhugamál og störf. Hvers vegna býr það þarna? Hverjar eru þjóðsögur þeirra, þjóðhættir og þjóðlíf.
  • Fljótt varð mér ljóst að til þess að geta einhvern tíma klárað svona verkefni yrði ég að sníða mér mun þrengri stakk en ég hafði ætlað því í raun og veru er alltaf hægt að bæta við sögum, myndskeiðum, fleiri viðmælendum því margir hafa merkilega sögu að segja eða geta deilt minningum sínum með okkur hinum. Ég ákvað að reyna að að tala við fólk víðs vegar um hreppinn, úr þorpinu, innsveitinni, eyjunum og fjörðunum og eins að tala við fólk á ýmsum aldri.
  • Von mín er að vefsíðan muni dafna í framtíðinni og við hana muni bætast margar sögur og myndskeið. Í ritgerðinni fjalla ég um það sem ekki kemur fram á vefsíðunni, ég lýsi hreppnum, staðháttum og fólki. Ég ræði m.a. um samfélög, hópa og samgöngur, bæði vegi og netsamgöngur. Það er margt að þakka og ber þar hæst viðmælendur mína sem gerðu þetta verkefni að raunveruleika. Það eru þeir sem gæddu viðtölin lífi og deildu hlut af sér með okkur hinum.

 

En – sjón er sögu ríkari. Slóðin á vefinn er reykholahreppur.com og jafnframt má fara inn á hann með því að smella á borða (kassa) í dálkinum hér hægra megin á síðunni.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31