26. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is
Vefurinn fimm ára - rætt við sveitarstjóra
Núverandi Reykhólavefur „fór í loftið“ á sumardaginn fyrsta árið 2008 og varð því fimm ára í gær. Af því tilefni birtust fréttir á vefnum bb.is á Ísafirði þar sem rætt var við Ingibjörgu Birnu sveitarstjóra og jafnframt á vef Morgunblaðsins. Miðað við íbúafjölda í sveitarfélagi telja menn sem til slíks þekkja að vefurinn sé einhver mest sótti sveitarfélagsvefur landsins.
Sjá hér:
► mbl.is 25.04.2013 Reykhólavefurinn fimm ára
Halldór Halldórsson, fstudagur 26 aprl kl: 13:17
Líklega er Reykhólahreppur langstærsta sveitarfélag landsins, miðað við höfðatölu.