16. október 2018 | Sveinn Ragnarsson
Vegagerðin birtir niðurstöður könnunar á leið R
Á vef Vegagerðarinnar er komin skýrsla um könnun á svokallaðri R-leið, samanborið við Þ-H (Teigsskóg). R-leiðin hefur að sjálfsögðu fengið nýja einkennisstafi og kallast A3. Það er óbreytt afstaða Vegagerðarinnar að Þ-H sé besti kosturinn og hafi margt fram yfir A3 leiðina. Helstu rökin fyrir því eru:
- Umferðaröryggi er að öllum líkindum minna á leið A3.
- Leið A3 er töluvert lengri en leið Þ-H eða 4,7 km.
- Kostnaður við leið A3 er verulega meiri en við leið Þ-H sem nemur tæpum 4 milljörðum kr.
- Ljóst er að umhverfisáhrif eru töluverð á leið A3. Kanna þarf matsskyldu og líklegt að gerð verði krafa um umhverfismat.
- Efnisþörf fyrir leið A3 er meiri og opna þarf fleiri námur.
- Verði farin leið A3 mun það líklega tefja framkvæmdir um tvö til þrjú ár.
Hér er svo hægt að sjá skýrsluna og fylgigögn: