Tenglar

9. júní 2009 |

Vegagerðin segir nei og málið fast í kerfinu

Vegagerðin hefur svarað erindi frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi, þeim Einari K. Guðfinnssyni og Ásbirni Óttarssyni, varðandi vegagerð úr Vattarfirði í Kjálkafjörð. Skipulagsstofnun ákvað að vísa framvæmdinni í mat á umhverfisáhrifum en sú ákvörðun var kærð til umhverfisráðherra, sem er nú með málið á sínu borði. Erindi þingmannanna snerist um það hvort hægt væri að bjóða út þá hluta vegarins sem eru nærri núverandi veglínu og ættu því ekki að þurfa að fara í umhverfismat. Svar Vegagerðarinnar var neikvætt.

 

Einar K. Guðfinnsson er ekki sáttur við það. Hann segir að því sé borið við, að ekki sé hægt að hrófla við áætlunum á meðan beðið sé eftir úrskurði ráðherra. Hann segir málið í raun fast í kerfinu. Hann segir líka að væntanlega búist enginn við öðru en að ráðherra Vinstri grænna úrskurði að leiðin skuli í umhverfismat. Því megi fólkið á Barðaströnd og aðrir sem nýta umræddan veg bíða í einhver ár eftir vegabótum þótt fjármagnið sé til.

 

Þetta kom fram í Svæðisútvarpinu.

 
Sjá einnig - Sjónarmið / Aðsent efni:
10.06.2009  Biðin endalausa á Vestfjarðavegi
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30