Tenglar

24. október 2009 |

Vegagerðin stendur við áform um vegarlagningu

Hér má glöggt sjá leið B sem Vegagerðin vill fara. Smellið á til að stækka.
Hér má glöggt sjá leið B sem Vegagerðin vill fara. Smellið á til að stækka.
Vegagerðin hyggst standa við fyrri áform um að nýr þjóðvegur verði lagður um Teigsskóg við Þorskafjörð og þvert yfir mynni Gufufjarðar og Djúpafjarðar. Vegamálastjóri segir að dómur Hæstaréttar sem féll í fyrradag komi ekki í veg fyrir þessa umdeildu vegarlagningu. Þetta kemur fram á fréttavefnum visir.is í dag. Þar segir einnig:

 

Eigendur sumarbústaða við utanverðan Þorskafjörð hafa lengi barist hart gegn áformum Vegagerðarinnar og hafa fengið til liðs við sig náttúruverndarsamtök. Í fyrradag felldi Hæstiréttur úr gildi úrskurð Jónínu Bjartmars þáverandi umhverfisráðherra um að heimila vegarlagninguna.

 

Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að tvennt sé í stöðunni, annars vegar að hætta við og leggja veginn í staðinn yfir hálsana [Hjallaháls og Ódrjúgsháls], sem hann telur ólíklegt, eða að fara í nýtt umhverfismat með leiðina um Teigsskóg og yfir firðina, sem hann telur að verði ofan á, en næstu skref verði ákveðin á næstu dögum.

 

Vegamálastjóri segir að dómur Hæstaréttar lúti að því að umhverfisráðherra hafi ekki verið heimilt að nota umferðaröryggi sem rökstuðning. Það hafi verið formleg atriði sem felldu málið og Hæstiréttur hafi verið ósammála héraðsdómi um að frekari rannsókna væri þörf vegna vegarlagningar yfir firðina.

 

Kristján L. Möller samgönguráðherra kveðst eftir helgi ætla að ræða við sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum og Vegagerðina um hvernig brugðist verði við hæstaréttardómnum og um næstu skref.

 

visir.is

 

Sjá einnig:

23.10.2009  Hæstiréttur: Vegur ekki lagður um Teigsskóg

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31