Tenglar

24. maí 2013 | vefstjori@reykholar.is

Vegstæðinu í Kjálkafirði breytt vegna skriðuhættu?

Frá skriðusvæðinu á Litlanesi í Kjálkafirði. Mynd: Vegagerðin.
Frá skriðusvæðinu á Litlanesi í Kjálkafirði. Mynd: Vegagerðin.

Gissur Sigurðsson fréttamaður sagði á Bylgjunni í morgun, að til greina kæmi að breyta nýja vegstæðinu í Kjálkafirði í Múlasveit vestast í Reykhólahreppi til að draga úr skriðuhættu. Eins og fram hefur komið hefur vegurinn verið meira og minna lokaður að undanförnu vegna hættu á skriðuföllum og fyrir mánuði lokaðist hann vegna geysilegrar skriðu sem á hann féll. Fram kemur á vefsíðu Vegagerðarinnar, að sérstök vakt verði við framhlaupið í Kjálkafirði í dag, föstudag. Síðan verði veginum lokað á miðnætti og stefnt að því að opna aftur klukkan átta í fyrramálið.

 

Á morgun verður áfram vakt og aðstæður metnar að nýju. „Ástæða þessa er úrkoman sem verður á svæðinu í dag sem eykur hættuna á frekari skriðuföllum. Til þess gæti komið fyrirvaralítið að loka þurfi veginum og eins verða aðstæður metnar í fyrramálið, hafi áhættan aukist um nóttina gæti komið til þess að ekki yrði hægt að opna veginn fyrr en síðar en klukkan átta,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

 

Tengdar fréttir á vef Reykhólahrepps:

18.05.2013 Vegurinn opnaður og verður lokað aftur

17.05.2013 Vestfjarðavegur lokaður um óákveðinn tíma

27.04.2013 Myndir af skriðunni miklu í Kjálkafirði

24.04.2013 Reynum að taka þessu með stóískri ró

23.04.2013 Gríðarleg skriða lokar Vestfjarðavegi 60

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Desember 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31