Vegur og brú yfir Þorskafjörð auglýst
Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Kinnarstaðir – Þórisstaðir
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 2,7 km kafla yfir Þorskafjörð. Innifalið í verkinu er bygging 260 m langrar steyptrar brúar á Þorskafjörð.
Helstu magntölur eru:
Fylling / ferging og vegagerð
- - Bergskeringar 171.500 m3
- - Fylling / ferging 350.000 m3
- - Grjótvörn 36.700 m3
- - Styrktarlag 13.300 m3
- - Burðarlag 5.300 m3
- - Klæðing 23.800 m2
- - Vegrið 2.750 m
Brúarsmíði
- - Grjótvörn 1.300 m3
- - Brúarvegrið 542 m
- - Gröftur 1.300 m3
- - Fylling 1.300 m3
- - Niðurrekstrarstaurar 280 stk.
- - Mótafletir 5.400 m2
- - Slakbent járnalögn 214.300 kg
- - Spennt járnalögn 214.300 kg
- - Steypa 3.900 m3
Verkinu skal að fullu lokið 30. júní 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 16. febrúar 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.
Útboðið er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu.