Tenglar

27. apríl 2011 |

Vegurinn nánast ekki ökuhæfur

Mynd frá þessari leið á liðnu sumri. mbl.is / Sigrún Davíðsdóttir.
Mynd frá þessari leið á liðnu sumri. mbl.is / Sigrún Davíðsdóttir.
Vegurinn milli Bjarkalundar og Patreksfjarðar er í afar slæmu ástandi og nánast ekki ökuhæfur þessa dagana, segir á vef Morgunblaðsins. „Þessir malarkaflar verða afar varasamir í þessari bleytutíð. Frostið er að fara úr jörð og það er því miður fátt hægt að gera,“ segir Magnús Valur Jóhannsson, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni. Hann segir að þetta gerist á hverju vori.

 

„Á leiðinni á milli Bjarkalundar og Patreksfjarðar eru tveir langir malarkaflar. Annar er í Gufudalssveit og umbætur á þeim vegi eru í frosti vegna dóms um að ekki megi leggja veg um svokallaðan Teigsskóg. Vestar er annar malarkafli á milli Vattarfjarðar og Kjálkafjarðar. Hann er nú í umhverfismati og stefnt er að því að uppbygging á þeim vegi hefjist í lok þessa árs eða í byrjun þess næsta,“ segir Magnús Valur.

 

Aðspurður hvers vegna ekki sé reynt að bæta úr þessu ástandi segir Magnús Valur: „Það hefur lengi staðið til að byggja þarna nýjan veg. Þegar svo háttar, þá er oft tilhneiging til að kosta ekki miklu við gömlu vegina, Og síðan hafa komið þarna upp mál sem hafa valdið því að framkvæmdir hafa tafist. En við munum reyna að hafa þessa vegi eins góða og kostur er miðað við þá peninga sem við höfum.“

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31