18. maí 2013 | vefstjori@reykholar.is
Vegurinn opnaður og verður lokað aftur
Vestfjarðavegur nr. 60 verður opinn um Kjálkafjörð í dag [laugardag] en lokast aftur um miðnætti aðfaranótt sunnudags 19. maí um óákveðinn tíma vegna hættu á skriðuföllum. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Vegfarendum skal bent á að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu Vegagerðarinnar þar sem jafnóðum eru birtar upplýsingar um stöðu mála.
► 17.05.2013 Vestfjarðavegur lokaður um óákveðinn tíma