Tenglar

24. október 2012 |

„Veiðimenn kynni sér hvar lönd jarða liggja“

Rjúpnaveiði og önnur skotveiði er stranglega bönnuð í landareignum margra jarða í Reykhólahreppi. Smátt og smátt hafa bæst við jarðir á bannlistann sem birtur er hér á vefnum. Skotveiðimenn eru minntir á að kynna sér listann og jafnframt að kynna sér landamerki áður en haldið er til veiða. Auk þess skal á það minnt, að óheimilt er að veiða án leyfis í landareignum annars fólks þó að bann við slíku hafi ekki verið tilkynnt opinberlega.

 

Varðandi landamerki skal hér birtur póstur sem Ástþór Ágústsson í Múla í Ísafirði (innst í Ísafjarðardjúpi) sendi vef Reykhólahrepps:

 

Ég sá listann um veiðibann á rjúpu á jörðum í Reykhólahreppi og er ekkert nema gott um það að segja. En það sem ég vildi nefna hér er að á undanförnum árum hefur borið á því að veiðimenn komi upp á Kollafjarðarheiði úr Kollafirði og séu að skjóta á heiðinni og víðar án leyfis. Meðal annars hefur orðið vart við veiðimenn í landi Múla í Ísafirði sem er þó í allnokkurri fjarlægð frá vegslóðanum á heiðinni. Mér datt í hug hvort þú gætir sett á listann að þeir veiðimenn sem ætla sér á Kollafjarðarheiði kynni sér hvar lönd jarða liggja og veiði aðeins þar sem leyfi liggur fyrir. Með kveðju. Ástþór í Múla.

 

Rjúpnaveiðitíminn þetta árið skiptist á fjórar helgar og verður fyrsta lotan núna um helgina. Veiðidagarnir í ár er þessir:

  • 26.-28. október (föstudagur, laugardagur og sunnudagur)
  • 3.-4. nóvember (laugardagur og sunnudagur)
  • 17.-18. nóvember (laugardagur og sunnudagur)
  • 24.-25. nóvember (laugardagur og sunnudagur)

Bannlistinn í Reykhólahreppi

  

Athugasemdir

Hlynur Þór Magnússon, umsjónarmaður vefjar Reykhólahrepps, mivikudagur 24 oktber kl: 13:16

Gott væri að fá upplýsingar um það ef leyfi til skotveiða eru seld í löndum einhverra jarða í Reykhólahreppi. Einhvers staðar þurfa rjúpnaveiðimenn að komast í veiði! Þessu má koma á framfæri hér í athugasemdunum eða til umsjónarmanns vefjarins (vefstjori@reykholar.is eða í síma 892 2240 / 434 7735). Um það mætti skrifa sérstaka frétt hér á vefinn ef svo ber undir.

Bergsveinn G Reynisson, fimmtudagur 25 oktber kl: 21:27

Í fyrsta skipti í rúm 20 ár er vegna óvæntra atvika lausir 2 dagar í rjúpu í landi Gilsfjarðar-Brekku, það er núna á laugardag og sunnudag 27.og 28. okt.
Þetta er hæfilega stórt land fyrir 2-4
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 892 8418.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31