Tenglar

22. janúar 2010 |

Vel sótt prjónakaffi í Breiðfirðingabúð

Myndir: Vefur Breiðfirðingafélagsins.
Myndir: Vefur Breiðfirðingafélagsins.
1 af 2
Prjónakaffi á vegum Breiðfirðingafélagsins var haldið í fyrsta skipti í Breiðfirðingabúð í Reykjavík á mánudag og var vel sótt. Þar komu 38 manns, bæði konur og karlar, ungir sem aldnir. Á boðstólum var kaffi, gos og kleinur og mikið spjallað, prjónað og saumað. Ákveðið var að koma aftur saman núna á mánudaginn, 25. janúar kl. 20, og síðan verði prjónakaffið annan hvern mánudag fram eftir vetri. Eins og gefur að skilja voru teknar myndir við þetta tækifæri. Nánari upplýsingar um prjónakaffið gefa Erla í síma 898 6747 og Maddý í síma 695 2425.

 

Þetta kemur fram á vef Breiðfirðingafélagsins.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31