Tenglar

4. júlí 2017 | Sveinn Ragnarsson

Velheppnuð afmælishátíð

1 af 2

 

30 ára afmælisfagnaður Reykhólahrepps var haldinn undir berum himni í Hvanngarðabrekkunni, þar sem verið er að bæta aðstöðu til skemmtanahalds. Það var eitt af úrlausnarefnum sveitarstjórnar hvort halda ætti samkomuna þar eða inni í íþróttahúsinu, og eins og jafnan áður tóku þau rétta ákvörðun, að vera úti í góða veðrinu.

 

Dagskráin var góð, söngur, fróðleikur og ræður í léttum dúr, í hæfilegum hlutföllum. Henni verða gerð betri skil hér á síðunni síðar.

Sveitarstjórnin grillaði ofan í mannskapinn og var það bæði ljúffengt og vel útilátið.

 

Myndir frá þessari samkomu má skoða í myndasyrpum hér til vinstri á síðunni.

Hér til hægri er mynd af fyrstu hreppsnefnd Reykhólahrepps í núverandi mynd; efri röð fv. Jóhanes G. Gíslason, Smári H. Baldvinsson, Einar V. Hafliðason, Karl Kristjánsson og Stefán Magnússon, fremri röð fv. Áshildur Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Ólafsson og Reinhard Reynisson sveitarstjóri.

   

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31