26. apríl 2014 | vefstjori@reykholar.is
Verðlaun fyrir bestu lambhrútana 2013
Á aðalfundi Sauðfjárræktarfélags Reykhólahrepps í vikunni voru sem endranær veitt verðlaun fyrir bestu lambhrútana á liðnu ári. Arnór á Hofsstöðum fékk 1. verðlaun fyrir hyrnda lambhrúta og Staðarbúið bæði 2. og 3. verðlaun. Fyrir kollótta hrúta sópaði Þórður í Árbæ til sín öllum verðlaununum. Fyrir mislita hrúta fékk Þórður 1. verðlaun, Bára á Gróustöðum 2. verðlaun og Tómas á Reykhólum 3. verðlaun.
Myndina sem hér fylgir tók Indiana Svala Ólafsdóttir á Reykhólum.
► 15.12.2013 Fimm bestu lambhrútarnir komu frá Árbæ
► 11.11.2012 Úrvalshrútar: Ljúfur frá Árbæ, Kroppur frá Bæ
► 13.04.2012 Þér hrútar
► 03.03.2011 Fimm býli fengu hrútaverðlaun