Verðlaun í flokknum Ásýnd fyrirtækis eða vörumerkis
Auglýsingastofan Jónsson & Le'macks hlaut Lúðurinn í flokknum Ásýnd fyrirtækis eða vörumerkis fyrir hugmynda- og hönnunarvinnu sína fyrir Norðursalt á Reykhólum. Lúðurinn, hin árlega afhending Íslensku markaðsverðlaunanna, fór fram í Hörpu í Reykjavík í gærkvöldi, á ÍMARK-deginum. Einnig var fyrirtækið tilnefnt í flokki veggspjalda og skilta fyrir auglýsingar sem birtar voru á strætóskýlum í höfuðborginni.
ÍMARK, Samtök íslensks markaðsfólks, stendur fyrir viðburðinum í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA). Tilgangurinn er að vekja athygli á vel gerðu auglýsingaefni og veita aðstandendum þess verðskuldaða athygli. Þetta var í tuttugasta og áttunda skipti sem Lúðurinn er haldinn en keppnin er opin öllum sem stunda gerð eða dreifingu auglýsinga á Íslandi.
► Hér má sjá hvernig hafmeyjan Alda og vörumerkið og umbúðirnar hjá Norðursalti urðu til (tveggja mínútna myndskeið)