15. febrúar 2013 | vefstjori@reykholar.is
Verkefni fyrir einhverja í Reykhólahreppi?
Óskað er eftir tilboði í niðurrif á skemmu við Aðalstræti á Patreksfirði. Um er að ræða um 270 fermetra járnklætt timburhús, að hluta klætt að innan með einangraða veggi, steypta grunnplötu og að hluta eru lágir sökklar í inn- og útveggjum. Tilboðið skal ná yfir að fjarlægja allt húsið og farga því sem er ónýtanlegt.