21. mars 2017 | Sveinn Ragnarsson
Verkefnið Átak til atvinnusköpunar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átak til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja. Umsóknafrestur er til 18. apríl 2017, kl. 12 á hádegi. Nánari upplýsingar er hægt að fá á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar.
Þegar nær dregur verður minnt á þetta aftur.