23. júní 2017 | Sveinn Ragnarsson
Verndaráætlun í Flatey - auglýsing um friðlandið
Undanfarið hafa fulltrúar Reykhólahrepps, Framfarafélags Flateyjar, ábúenda í Flatey og Umhverfisstofnunar unnið að endurnýjun auglýsingar um friðlandið, og stjórnunar- og verndaráætlun fyrir svæðið. Tillögurnar hafa verið lagðar fram til kynningar á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum er til 2. júlí 2017.
Skjölin ásamt upplýsingum um hvernig skila skal ábendingum og athugsemdum er að finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar á eftirfarandi slóðum:
https://ust.is/einstaklingar/nattura/fridlysingar-i-vinnslu/flatey-a-breidafirdi/
https://ust.is/einstaklingar/nattura/verndaraaetlanir-i-vinnslu/fridlandid-i-flatey/