Tenglar

23. apríl 2010 |

Vestfirðingar sitji við sama borð og aðrir

Sigurður Atlason.
Sigurður Atlason.
„Vegabætur í fjórðungnum hafa verið langt á eftir öðrum landshlutum í áratugi“, segir Sigurður Atlason, formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða. „Sú ákvörðun Alþingis að fella Dýrafjarðargöng út úr samgönguáætlun lýsir fyrst og fremst fullkomnu skilningsleysi gagnvart íbúum fjórðungsins og setur stefnumótunarvinnu ferðaþjónustunnar í uppnám. Ferðamálasamtök Vestfjarða hljóta að mótmæla því harðlega og krefjast þess að íbúar á Vestfjarðakjálkanum sitji við sama borð og aðrir landsmenn þegar kemur að ákvörðunum um vegamál. Með þessari ákvörðun er verið að skerða verulega samkeppnishæfni vestfirskra fyrirtækja til lengri tíma“, segir Sigurður.

 

Þess má geta, að á fjölmennum aðalfundi Ferðamálasamtaka Vestfjarða á Hótel Núpi í Dýrafirði um síðustu helgi var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða:

 

„Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða skorar á stjórnvöld að skera ekki niður framlög til samgöngumála í fjórðungnum. Bættar samgöngur eru forsenda uppbyggingar í ferðaþjónustu á Vestfjörðum.“

 

Sjá einnig:

Dýrafjarðargöng slegin út af borðinu

Á varla orð til að lýsa vonbrigðum sínum

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31