30. ágúst 2017 | Sveinn Ragnarsson
Vestfirðir utan háannar
Markaðsstofa Vestfjarða verður með hugmyndafund á Hólmavík 31. ágúst. Fundurinn er hluti af verkefni sem snýr að því að útbúa ferðapakka sem í boði væru á Vestfjörðum utan háannar og er ætlað að efla heilsársferðaþjónustu á Vestfjörðum.
Með fundunum langar okkur að heyra ykkar hugmyndir að því hvernig hægt er að tengja saman ferðaþjóna, svæði og vörur ásamt því að sjá hvað er í boði á hverju svæði og hverjir hefðu áhuga á að taka þátt í slíkum pökkum.
Hólmavík - 31. ágúst - Hnyðja kl. 15:00
Skráning: magnea@vestfirdir.is