1. mars 2016 |
Vetrarhátíð Flateyinga nálgast
Hin árlega Vetrarhátíð Framfarafélags Flateyjar verður laugardaginn 12. mars í félagsheimili Hestamannafélagsins Fáks í Víðidal. Veislustjórn er í höndum Byggðarendafólks og allar líkur á að þau fari með gamanmál og önnur mál eins og þeim er lagið. Hljómsveitin Royal mun leika fyrir dansi.
Hátíðin í fyrra: Veislukostur með eyjaívafi og vínið á Flateyjarverði