17. febrúar 2017 | Umsjón
Vetrarhátíð með veislum á Hólmavík
Núna um helgina eru mánaðamót samkvæmt gamla íslenska tímatalinu, þorra lýkur á morgun og góa hefst með konudeginum á sunnudag. Vetrarhátíð með ýmsum dagskrárliðum hjá Strandagaldri og Restaurant Galdri á Hólmavík hefst í dag, föstudag, og stendur fram á sunnudag. Borðhald með veisluföngum verður í kvöld og annað kvöld. Panta þarf borð því að salurinn er ekki stór.
Nánar um hátíðina hér á strandir.is
Hvenær er góa og hvað þýðir orðið eiginlega? (Vísindavefurinn)
Hver er uppruni og saga konudagsins? (Vísindavefurinn)