Tenglar

8. ágúst 2013 | vefstjori@reykholar.is

Við skorum glæpasögurnar á hólm!

Hallgrímur Sveinsson.
Hallgrímur Sveinsson.

Þó að glæpasögur séu margar góðar sem slíkar er hæpið að láta þær verða aðallesmál þjóðarinnar. Það er svipað og með melrakkann. Hann var fyrir í landinu þegar mannskepnan kom og á sinn þegnrétt. En rebbi má ekki vaxa okkur yfir höfuð. Þá er voðinn vís.

 

Þannig hefst svolítill pistill sem Hallgrímur Sveinsson á Brekku í Dýrafirði (Vestfirska forlagið) sendi vefnum til birtingar. Einnig segir þar:

 

Í vestfirskum sagnaarfi eru bæði spenna og dramatík, að ekki sé nú talað um húmorinn. Fólk hugsar oft ekki út í þetta. Það talar um þjóðlegan fróðleik með neikvæðum teiknum og jafnvel lítilsvirðingu. Vill frekar lesa einhverjar spennusögur sem kallaðar eru. En það er ekki síður spenna í því sem gerðist í raun og veru, eða átti að hafa gerst og stundum miklu meiri.

 

Pistilinn í heild má lesa hér og undir Aðsent efni í valmyndinni vinstra megin.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Oktber 2024 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31