27. nóvember 2018 | Sveinn Ragnarsson
Viðburðir á jólamarkaði Össu
Eins og áður hefur verið sagt frá verður jólamarkaður Össu í Króksfjarðarnesi helgina 1. og 2. des.
Laugardaginn 1. des. kl. 13 kynnir Jón á Kirkjubóli nýja bók sína, Á mörkum mennskunnar. Kl. 15 mun Nikkólína spila fyrir gesti.
Sunnudaginn 2. des. kl. 14 kemur svo Íris Björg á Klúku og syngur nokkur lög.
Nánar um jólamarkaðinn á meðfylgjandi auglýsingu.