Tenglar

20. september 2017 | Sveinn Ragnarsson

Viðmiðunardagur kjörskrár 23.sept.

Líkt og flestum er kunnugt um hefur verið ákveðið að ganga til Alþingiskosninga þann 28. október nk. Samkvæmt a lið 1. mgr. 23 gr. laga um kosningar til Alþingis er viðmiðunardagur kjörskrárstofns 5 vikum fyrir kjördag, sem þýðir að viðmiðunardagur að þessu sinni er 23. september sem er næstkomandi laugardagur.


 Mikilvægt er því að allar þær breytingar sem þarf að gera á skráningu lögheimilis verði gerðar fyrir lok föstudagsins 22. september. Þær lögheimilisbreytingar sem berast eftir viðmiðunardag fara ekki inn á kjörskrárstofn.  


Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst miðvikudaginn 20. sept. eða svo fljótt sem kostur er, í samræmi við XII. kafla laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31