Tenglar

18. mars 2011 |

Viðsjárvert háflóð og veður í Reykhólahöfn

Björn Samúelsson vélstjóri á Karlsey, skipi Þörungaverksmiðjunnar, vekur athygli á hárri flóðstöðu í Reykhólahöfn á mánudagsmorgun og varar við henni. Hásævið nær hámarki kl. 8.16 með 4,40 metra flóðhæð - ef veðrið bættist ekki við. Samkvæmt veðurspá mun djúp lægð hækka flóðið ásamt hvassri suðvestanátt með tilheyrandi öldugangi. Björn segir að huga verði að lausum hlutum á trébryggju og hafnarsvæði, sem hæglega gætu skolast í sjóinn, svo sem timbri og körum, sem eru þar ófest.

 

„Vonandi gengur þessi veðurspá ekki alveg eftir“, segir Björn, „en fyrir nokkrum árum lentum við í svipaðri stöðu.“

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31