Viðtökurnar langt fram úr björtustu vonum
Hárgreiðslustofan Flottir lokkar á Reykhólum (Silvía Björk Birkisdóttir) minnir fólk á að panta tíma vel fyrir Reykhóladagana sem byrja eftir aðeins ellefu daga. Rúmt ár er síðan Silvía opnaði stofuna sína og segir hún viðtökurnar hafa farið langt fram úr björtustu vonum, eða eins og hún segir: „Ég hefði aldrei getað trúað þessu.“
Silvía verður síðan í fríi frá og með 31. júlí en kemur aftur til starfa 13. ágúst.
Á stofunni hjá Silvíu Björk fæst mikið úrval af hárvörum, svo sem sjampói og hárnæringu í öllum stærðum og gerðum. „Tilvalið að hafa með í sumarfríið“, segir hún.
Minnt skal á, að nauðsynlegt er að panta tíma fyrirfram í síma 845 4550. Hárgreiðslustofan Flottir lokkar er á neðri hæð sundlaugarhússins (þjónustuhússins við Grettislaug).
► 16.12.2011 Silvía „okkar“ sigraði í aðventukransakeppni IKEA
► 24.06.2011 Flottir lokkar: Hárgreiðslustofa opnuð á Reykhólum