Tenglar

2. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Viðvera bankans frestast vegna veðurs

Afgreiðsla Landsbankans verður ekki á Reykhólum í dag eins og til stóð. Veður í héraðinu er afleitt líkt og oft hefur verið síðustu vikurnar, bálhvasst og sums staðar slydduhraglandi en inni í sveit sér naumast út úr augum fyrir snjókomu. Hálkan er eftir þessu.

 

Séð verður til hvort betur viðrar á morgun, föstudag, og hvort þá verður hægt að vera með afgreiðslu bankans á Reykhólum. Greint verður frá því hér á vefnum í fyrramálið.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31