Viðvörun til húseigenda vegna leysingavatns
Ef veðurspár Einars Sveinbjörnssonar hjá Veðurvaktinni ganga eftir má vænta töluverðs vatnselgs næstu daga. Mikilvægt er að búa sig vel undir hann. Í nótt spáir hann að það hláni. Talsvert muni rigna í byggð fram eftir morgundeginum, einkum sunnan til á Vestfjörðum. Leysingin komi til með að ná upp fyrir miðjar fjallshlíðar og hiti á láglendi verði um fimm stig. Hlákan verði snörp og síðan kólni aftur á föstudag með nýjum snjó í SV-átt.
Um helgina hlýni síðan aftur með ákveðinni S-átt og rigningu á köflum. Reiknað er með umtalsverðri leysingu vel fram yfir helgina, þar sem snjó og klaka mun taka nokkuð hratt upp í byggð.
Þar sem snjóalög eru sumstaðar talsverð og klaki er víða undir, er brýnt fyrir húseigendur að vera á varðbergi og moka frá niðurföllum svo að leysingavatn finni greiða leið.
- Moka snjó og klaka frá niðurföllum.
- Tryggja að niðurfall sé ekki stíflað.
- Moka snjó af svölum.
- Moka snjó frá húsveggjum.
- Gæta að vatnssöfnun á þaki, sér í lagi ef það er flatt.
(Póstur frá VÍS, með forvarnakveðju).