Tenglar

9. mars 2016 |

Viðvörun til húseigenda vegna leysingavatns

Ef veðurspár Einars Sveinbjörnssonar hjá Veðurvaktinni ganga eftir má vænta töluverðs vatnselgs næstu daga. Mikilvægt er að búa sig vel undir hann. Í nótt spáir hann að það hláni. Talsvert muni rigna í byggð fram eftir morgundeginum, einkum sunnan til á Vestfjörðum. Leysingin komi til með að ná upp fyrir miðjar fjallshlíðar og hiti á láglendi verði um fimm stig. Hlákan verði snörp og síðan kólni aftur á föstudag með nýjum snjó í SV-átt.

 

Um helgina hlýni síðan aftur með ákveðinni S-átt og rigningu á köflum. Reiknað er með umtalsverðri leysingu vel fram yfir helgina, þar sem snjó og klaka mun taka nokkuð hratt upp í byggð.

 

Þar sem snjóalög eru sumstaðar talsverð og klaki er víða undir, er brýnt fyrir húseigendur að vera á varðbergi og moka frá niðurföllum svo að leysingavatn finni greiða leið.

  • Moka snjó og klaka frá niðurföllum.
  • Tryggja að niðurfall sé ekki stíflað.
  • Moka snjó af svölum.
  • Moka snjó frá húsveggjum.
  • Gæta að vatnssöfnun á þaki, sér í lagi ef það er flatt.

 

(Póstur frá VÍS, með forvarnakveðju).

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31