Tenglar

19. ágúst 2015 |

Vilberg á Hríshóli annar í hrútaþukli

Ýmsir tóku myndirnar sem hér fylgja. Sjá nánar í meginmáli.
Ýmsir tóku myndirnar sem hér fylgja. Sjá nánar í meginmáli.
1 af 5

Afbragðsmæting og ljómandi stemmning var á Íslandsmeistaramótinu í hrútadómum sem fram fór á Sauðfjársetrinu á Ströndum á sunnudag, en mótið hefur verið haldið allt frá 2003. Þarna reyna hrútaþuklarar víðs vegar af landinu á hæfileika sína, bæði vanir og óvanir. Keppnin felst í að leggja mat á fjóra veturgamla kollótta hrúta af Ströndum og finna kosti þeirra og galla.

 

Þátttaka var betri en nokkru sinni fyrr í keppninni sjálfri, 53 kepptu í flokki óvanra (sem raða hrútunum í röð og rökstyðja matið, oft á gamansaman hátt) og 41 í flokki vanra (sem gefa hrútunum stig fyrir ýmsa eiginleika eftir kúnstarinnar reglum sem bændur kunna). Um 500 manns mættu til að horfa á og upplifa þessa einkennilegu skemmtun Strandamanna.

 

Þetta kemur fram í frétt frá Sauðfjársetrinu á Ströndum. Þar segir ennfremur:

 

Einnig var í fyrsta skipti haldið svokallað þukleinvígi, þar sem stórleikararnir í Hrútum, Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson, kepptu hvor væri flinkari hrútaþuklari og næði betra andlegu sambandi við sauðskepnuna. [Innskot: Á mynd nr. 4 er Sigurður að þukla hrút.]

 

Guðmundur Gunnarsson á Kjarlaksvöllum í Saurbæ í Dalabyggð fór með sigur á hólmi í flokki vanra þuklara og er því Íslandsmeistari í hrútaþukli árið 2015. Í öðru sæti varð Vilberg Þráinsson á Hríshóli í Reykhólahreppi, en í þriðja sæti varð Bjarki Reynisson á Kjarlaksvöllum. Strandamönnum þykir sumum heldur verra að verðlaunapallurinn hafi alfarið verið skipaður utansýslumönnum að þessu sinni.

 

Í fyrsta sæti í flokki óvanra (þeirra sem stiga ekki hrútana) var Björg Helgadóttir í Holti í Austur-Húnavatnssýslu, í öðru sæti Helga Gunnarsdóttir á Hólmavík (með Bjarnheiði Fossdal á Melum sem stuðningsfulltrúa) og í þriðja sæti Elínborg Birna Vignisdóttir á Hólmavík. Sérskipuð dómnefnd helstu hrútasérfræðinga landsins sá um dómgæsluna, ráðunautarnir Eyþór Einarsson, Jón Viðar Jónmundsson og Lárus Birgisson.

 

Einvígi þeirra Theodórs Júlíussonar og Sigurðar Sigurjónssonar sem leika Gumma og Kidda í kvikmyndinni Hrútar var kostulegt á að horfa. Þukluðu þeir hrútana með miklum tilþrifum og sendu hvor öðrum meinlegar athugasemdir inn á milli við mikinn fögnuð áhorfenda. Þeir báru sig reyndar einstaklega fagmannlega að við þuklið og fengu mikið hrós frá dómnefndinni. Theodór hafði að lokum betur í þukleinvíginu, en hann var einn af fáum keppendum sem höfðu röðina á hrútunum nákvæmlega á hreinu.

 

Vegleg verðlaun fyrir góðan árangur í dómunum voru gefin af Ferðaþjónustunni Heydal í Mjóafirði, SAH afurðum á Blönduósi, Ístex, Bændasamtökunum, Mjólkursamsölunni (MS), Malarhorni á Drangsnesi, Sauðfjársæðingastöð Vesturlands, Indriða á Skjaldfönn og Sauðfjársetri á Ströndum. Sigurvegarinn í keppninni og Íslandsmeistari í hrútaþukli 2015, Guðmundur Gunnarsson, varðveitir einnig í eitt ár farandgrip sem hagleiksmaðurinn Valgeir Benediktsson í Árnesi smíðaði úr hvalbeini og rekaviði og gaf Búnaðarsambandi Strandamanna fyrir áratug til minningar um Brynjólf Sæmundsson sem var héraðsráðanautur á Ströndum í meira en 40 ár.

 

Kaffihlaðborð var á boðstólum og ókeypis á allar sýningar Sauðfjársetursins í tilefni dagsins. Happdrætti var haldið þar sem líflömb frá bændum á Ströndum voru í vinninga og aðeins dregið úr seldum miðum. Litprúðar lífgimbrar komu frá Drífu á Ósi og Barböru og Viðari í Miðhúsum, en vel byggðir kynbótahrútar frá Sigríði og Ragnari á Heydalsá, Jóni og Ernu á Broddanesi, Gunnari og Pálínu í Bæ í Árneshreppi og Indriða bónda á Skjaldfönn við Djúp. Allar vinningshafar voru á staðnum og gáfu sig fram þegar dregið var og fóru tvö líflömb til bænda á Ströndum, tvö á Vesturlandið og tveir vinningar fóru á höfuðborgarsvæðið, þar af unnu tvö ung systkini sem eiga heima í 101 Reykjavík úrvals lambhrút.

 

Myndirnar sem hér fylgja tóku Angantýr Ernir Guðmundsson, Dagrún Ósk Jónsdóttir, Jón Jónsson og Trausti Rafn Björnsson.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31