Tenglar

20. apríl 2012 |

Vilja komast hjá stórslysi í lífríki landsins

1 af 3

Á aðalfundi Búnaðarsambands Vestfjarða, sem haldinn var í Heydal í Mjóafirði við Djúp í síðustu viku, var samþykkt ályktun til stuðnings tillögu Búnaðarþings 2012 um endurskipulagningu leiðbeiningaþjónustu í landbúnaði. Einnig voru samþykktar ályktanir um samgöngubætur innan Vestfjarða með gerð Dýrafjarðarganga og með endurbótum á veginum yfir Dynjandisheiði.

 

Samþykkt var áskorun til stjórnvalda um jöfnun flutningskostnaðar á raforku á landsvísu ásamt bótum á dreifikerfi með tilliti til gæða rafmagns og afhendingaröryggis og áherslu á hraðari uppbyggingu þriggja fasa rafmagns.

 

Þá lýsti fundurinn yfir stuðningi við tillögu til þingsályktunar um framtíðarskipan refaveiða með það að leiðarljósi að refastofninum verði haldið niðri um land allt svo ekki komi til stórslyss í lífríki landsins.

 

Fundurinn beindi því til stjórnar að koma á fót „Bændadegi“ og efna til „Hvatningarverðlauna“ á starfssvæðinu, sem nær frá Gilsfjarðarbotni vestur um og inn í Ísafjarðarbotn í Djúpi.

 

Á fundinum flutti Sigurður Ingi Friðleifsson frá Orkustofnun á Akureyri erindi um orkusparnað. Meðal annars ræddi hann um umhverfisvæna orkuöflun, varmadælur og hitastýringar í íbúðum. Einnig ræddi hann um einangrun og klæðningu húsa.

 

Í stjórn Búnaðarsambands Vestfjarða eru Árni Brynjólfsson á Vöðlum í Önundarfirði, formaður, Halldóra Ragnarsdóttir á Brjánslæk á Barðaströnd, ritari, og Sigmundur H. Sigmundsson á Látrum í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp, gjaldkeri. Á félagaskrá eru um 250 manns frá 100 búum.

 

Myndirnar voru teknar á aðalfundinum. Á þriðju mynd er Sigurður Ingi Friðleifsson frá Orkustofnun standandi og næst honum situr fundarstjórinn Salvar Baldursson í Vigur.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31