Tenglar

17. janúar 2010 |

Vilja óbreytt ráðuneyti frumgreinanna

Flokksráðsfundur Vinstri grænna skorar á stjórn og þingflokk VG að endurskoða áform um sameiningu atvinnuvegaráðuneyta. Í frumvarpi sem ríkisstjórnin hyggst innan tíðar leggja fyrir Alþingi verður kveðið á um sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins í eitt. Í ályktun flokksráðsins segir, að á næstu árum muni grunnatvinnuvegir þjóðarinnar, svo sem landbúnaður og sjávarútvegur, skipta verulegu máli við endurmótun íslensks atvinnulífs „eftir sviðna jörð frjálshyggjunnar og græðgisvæðingu undanfarinna ára“.
 
Varhugavert sé að draga úr vægi ofangreindra atvinnugreina innan stjórnsýslunnar á sama tíma og þjóðin þurfi öðru fremur að treysta á þessa málaflokka í þeim hremmingum sem nú ganga yfir.

 

Sjá einnig:

Sauðfjárbændur vilja frumgreinaráðuneytið áfram

Áform um að leggja niður ráðuneyti fordæmd

 

Athugasemdir

Guðjón D Gunnarsson, sunnudagur 17 janar kl: 17:49

Við þurfum öll að fylkja okkur að baki VG, Sauðfjárbænda og fleiri í þessu máli. Þetta er bara enn ein árásin á landsbyggðina, þar eru undirstöður þjóðfélagsins.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31