Tenglar

26. ágúst 2014 | vefstjori@reykholar.is

Vilja opinbera rannsókn

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga gagnrýnir harðlega þá stöðu sem er í fjarskiptamálum Vestfirðinga og sýndi sig vel í dag hversu viðkvæmt það er, þegar víðtæk bilun kom upp í búnaði Mílu og farsímakerfi Símans. Vegna þessarar bilunar er stór hluti Vestfjarða sambandslaus við umheiminn í margar klukkustundir og ljóst að alvarlegt ástand hefur skapast þar sem ekki er hægt að hringja í lögreglu eða aðra viðbragðsaðila. 

 

Fjórðungssamband Vestfirðinga og sveitarstjórnir á Vestfjörðum hafa ítrekað bent á mikilvægi þess að ljósleiðarinn sem liggur um Vestfirði sé hringtengdur, en eins og staðan er í dag þá er ekkert varasamband fjarskipta um svæðið. Slíkt óöryggi er algerlega óviðunandi og verður ekki búið við lengur.

 

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga skorar á innanríkisráðuneytið og Alþingi Íslendinga að leysa úr þessum vanda með hringtengingu ljósleiðarans hið snarasta. Að auki verði gerð opinber rannsókn á því hvað úrskeiðis fór til að svona ástand komi ekki upp aftur.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31