13. febrúar 2015 |
Vilja viðræður um yfirtöku Stykkishólmsbæjar
Á fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps í gær var lagt fram til kynningar samrit af erindi íbúa Reykhólahrepps í Flatey til bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar, dags. 24. október 2014. Þar óska íbúarnir eftir viðræðum við Stykkishólmsbæ um að hann yfirtaki stjórnsýsluna í Flatey. Erindið hefur verið tekið fyrir í byggðaráði Stykkishólmsbæjar, þar sem tekið var jákvætt í það.