Tenglar

21. mars 2016 |

Vill heilsársveg yfir Kollafjarðarheiði

Sumarvegurinn yfir Kollafjarðarheiði. Kort: Vegagerðin.
Sumarvegurinn yfir Kollafjarðarheiði. Kort: Vegagerðin.

Kristinn Bergsveinsson frá Gufudal, sem búsettur er á Reykhólum, gamall áhugamaður um samgöngur á Vestfjörðum, vill að nýr vegur verði lagður yfir Kollafjarðarheiði. Leiðin liggur milli Laugabólsdals í Ísafirði í Inndjúpi og Fjarðarhorns í Kollafirði í Reykhólahreppi. Gamli vegurinn yfir heiðina hefur lengi verið notaður sem sumarvegur líkt og vegurinn yfir Þorskafjarðarheiði. Vegalengdin er um 21 km, þar af um tveir þriðju á láglendi.

 

Formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis er Höskuldur Þórhallsson alþingismaður. Kristinn hefur nú ritað honum bréf og skorar hann þar á nefndina að taka veginn yfir Kollafjarðarheiði í þjóðvegatölu sem tengiveg milli Vestfjarðavegar 60 og Djúpvegar 61. Vegagerðinni verði falið að hanna veginn og gera kostnaðaráætlun og umhverfismat.

 

„Það er augljóst að vegurinn er nauðsynlegur bæði sem varaleið og jafnframt styttir hann leiðir. Þaulreyndur bílstjóri segir að aksturstíminn frá Ísafirði til Reykjavíkur yrði innan við fjóra tíma og tveir tímar milli Ísafjarðar og Patreksfjarðar,“ segir Kristinn í bréfi sínu.

 

Athugasemdir

María Játvarðardóttir, mnudagur 21 mars kl: 15:29

Þarna gekk ég einu sinni yfir, á ágústdegi 1977 ef eg man rétt. Það var lítið mál.

Ingólfur Kjartans, rijudagur 22 mars kl: 11:42

Burtséð frá því að vegalengdir milli þeirra staða sem um ræðir eru meiri en svo að það taki annars vegar um tvær og hins vegar innan við fjórar klukkustundir að aka þær, miðað við leyfðan hámarkshraða á vegum landsins og þrátt fyrir nýjan veg um Gufudalssveit. (Ísafjörður-Reykjavík um Kollafjarðarheiði um 445 km, Ísafjörður-Patreksfjörður um Kollafjarðarheiði um 320 km eins og staðan er í dag). Þá er þetta rakið hjá Kristni. Leiðin er einnig afskaplega falleg að aka og ekki síður að ganga. Þó verður að nefna að á þessari leið eru allnokkrar birkihríslur sem þarf að taka tillit til!!

Vilhjálmur Arnórsson, rijudagur 22 mars kl: 21:04

Er vitað fyrir víst að umræddur þaulreyndur bílstjóri kunni á klukku?

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31