Vill tillögur um varðveislu gamalla skipa og báta
Jón Bjarnason fyrrv. landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram á Alþingi tillögu um að skipuð verði nefnd til að gera tillögur um hvernig best megi tryggja varðveislu og viðhald gamalla skipa og báta. Í nefndinni sitji fulltrúar frá greinum sjávarútvegsins, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Þjóðminjasafni Íslands og héraðssöfnum. Í greinargerð eru taldir upp nokkrir „væntanlegir þátttakendur í umræddum verkefnum“ og segir þar um Bátasafn Breiðafjarðar:
Bátasafn Breiðafjarðar, Reykhólum, hefur á síðustu árum dregið saman á þriðja tug gamalla báta úr Breiðafjarðareyjum og héruðum í kring og bjargað flestum þeirra frá eyðileggingu. Sumir eru varðveittir í misjöfnu ásigkomulagi, gert er við aðra og enn aðrir eru endurbyggðir. Starfið er í fullum gangi og þess vegna er safnið lifandi vinnustaður ekki síður en sýningarstaður. Upphafsmaður bátasafnsins var Aðalsteinn Aðalsteinsson, báta- og bryggjusmiður úr Hvallátrum á Breiðafirði.
► Þingsályktunartillaga Jóns Bjarnasonar ásamt greinargerð