Tenglar

13. ágúst 2012 |

Villisveppasúpa á súpufundi ágústmánaðar

Súpufundur ágústmánaðar í Reykhólahreppi verður annað kvöld, þriðjudag, í matsal Reykhólaskóla. Þar segir Harpa Eiríksdóttir frá því sem hún hefur verið að fást við frá vordögum í fyrra sem ferðamálafulltrúi Reykhólahrepps í starfsnámi sínu í ferðamálafræðum frá Oxford Brookes á Englandi.

 

Húsið verður opnað kl. 18.30. Á borðum verður villisveppasúpa og kostar hún 800 krónur.

 

Í beinu framhaldi af súpufundinum verður sjálfboðaliðakvöld á Héraðsbókasafni Reykhólahrepps í gamla íþróttasalnum í skólanum. Allar hjálparhendur eru vel þegnar.

 

Viðfangsefni súpufundar septembermánaðar (4. september) liggur fyrir (sami staður, sami tími). Þá kemur María Játvarðardóttir frá Miðjanesi og ræðir um hamingju og samskipti.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31