Tenglar

3. apríl 2015 |

Vilt þú gerast persónulegur talsmaður?

Jón Þorsteinn Sigurðsson, réttindagæslumaður fatlaðs fólks á Vestfjörðum og Vesturlandi, óskar eftir að komast í samband við fólk sem hefði áhuga á því að gerast persónulegir talsmenn fatlaðra. Þessu er einkum beint til fatlaðra sjálfra, aðstandenda þeirra og starfsmanna sem kynnu að vita um einhvern sem hefði áhuga á því að gerast persónulegur talsmaður.

 

Einstaklingur, sem vegna fötlunar á erfitt með að gæta hagsmuna sinna, á rétt á að velja persónulegan talsmann sér til aðstoðar, skv. 7. grein laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk frá 2011. Meðal skilyrða sem þarf að uppfylla til þess að gerast persónulegur talsmaður er að sækja fræðslu um innihald og áherslur í starfinu. Um ólaunað starf er að ræða, en tilfallandi kostnaður er greiddur.

 

Fólk sem hefur áhuga á að gerast persónulegir talsmenn er beðið um að hafa samband við réttindagæslumann fatlaðs fólks á sínu svæði fram til 9. apríl og mun í framhaldinu fá upplýsingar um námskeið vegna fyrrgreindrar fræðslu. Síminn hjá Jóni Þorsteini er 858 1939 og netfangið jons@rett.vel.is. Hann veitir frekari upplýsingar um hlutverk persónulegs talsmanns, sé þess óskað, en nálgast má lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, sem og reglugerð um persónulega talsmenn, á www.vel.is/rettindagaesla.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31