Viltu hætta að reykja?
Krabbameinsfélag Reykjavíkur býður upp á reykleysisnámskeið í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Námskeiðið hefst mánudaginn 1. febrúar kl. 17-18. Leiðbeinandi er Ingibjörg K. Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur.
1. fundur: Mánudaginn 1. febrúar. Undirbúningsfundur.
2. fundur: Mánudaginn 8. febrúar. Undirbúningsfundur.
3. fundur: Mánudaginn 15. febrúar. Allir hættir að reykja.
4. fundur: Fimmtudaginn 18. febrúar.
5. fundur: Mánudaginn 22. febrúar.
6. fundur: Mánudaginn 29. febrúar.
7. fundur: Mánudaginn 14. mars.
8. fundur: Mánudaginn 23. maí. Endurfundir.
Fyrir marga er mikið mál að hætta að reykja og marklaust að gera slíkt með hálfum huga, segir í tilkynningu. Því betur sem menn sækja fundina, þeim mun meiri líkur eru á að þeir hætti að reykja. Fylgja á leiðbeiningum um undirbúning. Á meðan námskeið stendur og að því loknu geta þátttakendur fengið einkaviðtöl við leiðbeinanda.
Skráning á reykleysi@krabb.is eða í síma 540 1900. Þátttökugjald er kr. 15.000.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar eru á vefsíðunni krabb.is/reykleysi.