Viltu læra að búa til konfekt?
Enn eru örfá pláss laus á námskeið í konfektgerð, sem haldið verður í félagsheimilinu á Hólmavík á mánudagskvöld. Það hefst klukkan 18 og stendur um þrjá tíma. Þar kynnast þátttakendur leyndardómum konfektgerðar, læra að gera 3-4 mismunandi konfektmola og taka afraksturinn með sér heim. Leiðbeinandi er Halldór Karl Valsson matreiðslumeistari í Bolungarvík, sínum heimabæ. Halldór Karl varð Norðurlandameistari í matreiðslu árið 2004 og hefur starfað bæði á Hótel Holti og Hótel Ísafirði.
Námskeiðið kostar 10 þúsund krónur. Allur efniskostnaður er innifalinn í verði. Þess má geta að námskeiðsgjald er innheimt með greiðsluseðli sem kemur til greiðslu í janúar.
Áhugasamir vinsamlegast hafi samband við Stínu verkefnastjóra Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða á Ströndum í síma 867 3164 í síðasta lagi kl. tíu á mánudagsmorgun.