Tenglar

9. desember 2013 | vefstjori@reykholar.is

Viltu sækja þér jólatré inn í Skóga?

Frá Skógum í Þorskafirði / ÞÓ.
Frá Skógum í Þorskafirði / ÞÓ.

„Viltu eiga góða stund með börnunum þínum í skóginum og höggva þitt jólatré?“ Þannig spyrja þau Þórarinn Ólafsson og Björg Karlsdóttir í Stekkjarlundi við Berufjarðarvatn. Þau eru umsjónarmenn jarðarinnar Skóga í Þorskafirði, sem þekktust er fyrir að vera fæðingarstaður þjóðskáldsins séra Matthíasar Jochumssonar. Undanfarnar vikur hafa þau verið að grisja hina ýmsu barrreiti í skóginum og er því verki ekki nálægt því lokið. „En núna ætlum við að grisja reiti þar sem eru minni tré sem hafa ekki pláss til að verða stór og falleg“, segja Þórarinn og Björg.

 

„Þess vegna viljum við bjóða sveitungum okkar að koma í Hnausaskóg (Júkkaskóg) núna á laugardaginn 14. desember kl. 14-16 og velja sér tré, höggva og taka með heim. Það verður nóg af piparkökum í skóginum, og ef þið takið með ykkur kaffi eða kakó má gera stundina huggulega og eftirminnilega fyrir börn jafnt sem fullorðna. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir, við verðum á staðnum.“

 

 

Um Hnausaskóg, sem á síðari áratugum hefur einnig verið kallaður Júkkaskógur

 

„Júkkaskógur“ er kenndur við skáldið, rithöfundinn og alþýðufræðimanninn Jochum Eggertsson (1896-1966), sem notaði höfundarnafnið Skuggi. Hann var bróðursonur séra Matthíasar. Jochum keypti Skóga hálfsextugur, dvaldist þar meira og minna á sumrin, stundaði skógrækt og gerði tilraunir með ræktun ýmissa trjátegunda. Hann var ókvæntur og barnlaus og arfleiddi Baháí-samfélagið á Íslandi að jörðinni eftir sinn dag. Skógar eru í eigu Baháía enn í dag.

 

Landbúnaðarháskóli Íslands gekkst á liðnu sumri fyrir námskeiði sem nefndist Skógar Íslands. Nemendur ferðuðust um landið og skrifuðu síðan í sameiningu skýrslu sem ber heitið Ferðabók Skóga Íslands 2013. Þar segir m.a. um Skóga í Þorskafirði og skógræktina þar og um Jochum Eggertsson:

  • Jochum keypti jörðina Skóga árið 1951 og gerði hann tilraunir með ýmsar trjátegundir. Þó mest sjáist af sitkagreni er einnig að finna tegundir eins og síberíulerki, skógarfuru, ilmreyni, silfurreyni, blágreni, rauðgreni, selju o.fl. Að ógleymdum fjallaþöllunum sem hafa dafnað ljómandi vel á Skógum. Stærsta fjallaþöllin, sem ku vera sú stærsta á landinu, mældum við 7,67 m á hæð.
  • Jochum lést árið 1966 og arfleiddi þá Baháí-samfélagið á Íslandi að jörðinni. Hefur skógræktarstarfi verið áfram haldið og árið 2005 var gerður samningur við Skjólskóga á Vestfjörðum um rúmlega 80 hektara fjölnytjaskógrækt í landi Skóga. Sér fyrir enda á gróðursetningum í svæðið og farið að huga að stækkun.

 

Myndina sem hér fylgir tók áðurnefndur Þórarinn Ólafsson. Fjölda annarra mynda sem hann hefur tekið í Skógum í Þorskafirði er að finna hér.

 

Ferðabók Skóga Íslands 2013 (pdf)

 

- hþm

 

Athugasemdir

Ólafía Sigurvins., mnudagur 09 desember kl: 23:02

Frábært, vonandi get ég kíkt með börnin mín ;)

Viktoría, rijudagur 10 desember kl: 14:05

Flott framtak.
Hvernig nær maður í þetta fólk í síma, þ.e. Þórarinn Ólafsson og Björg Karlsdóttir?

Kveðja,
Viktoría
s. 6914131

Björg Karlsdóttir, rijudagur 10 desember kl: 17:01

Að gefnu tilefni viljum við taka fram að ef einhver kemst ekki á áður auglýstum tíma, er alltaf hægt að hafa samband við Björgu (6983685) og fá að koma þegar hverjum og einum hentar. Eina skilyrðið er að annað okkar sé með í för.

Á laugardaginn verðum við mætt kl. 11:00 ef það hentar betur.

Einnig: tréin kosta bara fyrirhöfn hvers og eins.
Björg of Þórarinn

Björk, fstudagur 13 desember kl: 10:13

Við mætum :-)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31