24. september 2012 |
Viltu syngja?
Hefurðu gaman af tónlist og góðum félagsskap? Þá er tilvalið að ganga í Kvennakórinn Norðurljós. Engin inntökupróf og óhætt fyrir óvana og hrædda að prófa, segir í tilkynningu frá stjórn Norðurljósa. Fyrsta æfing og samvera verður í Hólmavíkurkirkju annað kvöld, þriðjudag 25. sept. kl. 19.30. Rædd verða verkefni vetrarins og fleira.
Nánari upplýsingar veitir t.d. Salbjörg Engilbertsdóttir á Hólmavík.