10. mars 2012 |
Vinafélag Barmahlíðar vonast eftir nýju félagsfólki
Aðalfundur Vinafélags Barmahlíðar verður kl. 21 á fimmtudagskvöld, 15. mars, í handavinnusalnum á efri hæð Barmahlíðar á Reykhólum. Auk hinna venjulegu aðalfundarstarfa verður fjallað um tillögu að breytingu á lögum félagsins. Stjórn Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Barmahlíðar er boðið á fundinn.
Stjórn Vinafélagsins vonast til að sem flestir komi og eigi góða stund saman. Jafnframt eru nýir félagar hvattir til að koma og sitja fundinn.