Tenglar

23. febrúar 2010 |

Vinafélag Grettislaugar heldur félagsvist

Vinafélag Grettislaugar efnir til félagsvistar í húsnæði Hlunnindasýningarinnar við Maríutröð á Reykhólum á fimmtudag, 25. febrúar. Spilamennskan hefst kl. 20.00 og miðaverðið er 600 krónur. Allir eru velkomnir.

 

Hugmyndin að Vinafélagi Grettislaugar kviknaði í fyrravor þegar íbúar hreppsins drifu sig í sund eftir árlega hreingerningu. Sundlaugin var hálffull af vatni og yngsta kynslóðin skemmti sér konunglega. Þá kviknuðu umræður um að gaman væri að vera með buslulaug líka. Ákveðið var að stofna félag sem hefði það markmið að safna fyrir slíkri laug.
 
Á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun félagsins hefur það staðið fyrir fjáröflun af ýmsu tagi.

 

Grettislaug á Reykhólum

 

Athugasemdir

Hlynur Þór Magnússon, fimmtudagur 25 febrar kl: 11:39

Vegna veðurs og ófærðar hefur félagsvistinni verið frestað um viku.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31