Tenglar

21. apríl 2014 | vefstjori@reykholar.is

Vinir handan hafs - kynningarfundur á Reykhólum

Landnemafjölskylda í Vesturheimi eftir miðja 19. öld. Ljósm. Wikipedia.
Landnemafjölskylda í Vesturheimi eftir miðja 19. öld. Ljósm. Wikipedia.

Kynningarfundur undir heitinu Vinir handan hafs - Létt spjall um Vestur-Íslendinga verður haldinn á Reykhólum laugardaginn 3. maí. Atli Ásmundsson, fyrrum ræðismaður og áður m.a. kennari á Reykhólum segir sögur af starfinu vestra. Guðrún Ágústsdóttir blaðar í Vesturfaraskrá, athugar þar brottflutta úr Dalasýslu og Austur-Barðastrandarsýslu og spyr spurninganna  Hverjir, hvert og hvernig? Síðan eru ábendingar og fyrirspurnir á dagskránni áður en Svavar Gestsson fyrrverandi sendiherra og aðalræðismaður Íslands í Winnipeg segir frá Þjóðræknisfélagi Íslendinga í Vesturheimi og starfsemi þess.

 

Fundurinn verður í borðsal Reykhólaskóla og hefst kl. 14. Fundarstjóri verður Karl Kristjánsson bóndi á Kambi í Reykhólasveit.

 

Kynning þessi er samvinnuverkefni Þjóðræknisfélagsins og utanríkisráðuneytisins.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31