Vinnuskóli Reykhólahrepps- og starf flokksstjóra
Vinnuskóli verður starfandi sumarið 2018 frá 4. júní til og með 17. ágúst, með þeim fyrirvara að næg þátttaka náist. Unnið verður í tveimur lotum. Fyrri lotan verður 1. júní - 30. júní og seinni lotan 8. ágúst.-16. ágúst.
Rétt til starfa í vinnuskólanum hafa börn fædd 2002–2005, nemendur í Reykhólaskóla skólaárið 2017-2018 og/eða með lögheimili í Reykhólahreppi.
Helstu verkefni verða sem fyrr; garðsláttur og hreinsun opinna svæða svo og lítilsháttar viðhaldsverkefni, ásamt námskeiði sem snýr að vinnumarkaðnum, samskiptaverkefnum og fegrun á umhverfi. Mikið er lagt upp úr fjölbreyttum verkefnum á hinum ýmsu sviðum til að kynna fyrir börnunum fjölbreytni vinnumarkaðirns. Tómstundafulltrúi mun starfrækja leikjanámskeið fyrir börn fædd 2008-2012 samhliða vinnuskólanum og munu starfsmenn vinnuskólans aðstoða við framkvæmd undir handleiðslu tómstundafulltrúa.
Umsóknareyðublað er að finna á www.reykholar.is og á skrifstofu Reykhólahrepps. Hægt er að skila umsóknum á skrifstofuna eða senda á johanna@reykholaskoli.is. Umsóknarfrestur er til 15. maí. Athugið að foreldri eða forráðamaður þarf að undirrita umsóknina. Nánari upplýsingar í síma 698-2559/434-7880.
Vinsemd og virðing eru höfð að leiðarljósi í vinnuskólanum.
Launataxtar:
13 ára – fædd 2005 598 kr.klst.
14 ára – fædd 2004 690 kr.klst.
15 ára – fædd 2003 791 kr.klst.
16 ára – fædd 2002 984 kr.klst.
Vinnutími: 5 stundir á dag, kl. 9:00 – 14:00.
Auglýst er starf flokksstjóra vinnuskólans, sjá Laus störf hér til vinstri.
Ásta Sjöfn, mivikudagur 25 aprl kl: 15:38
Verður ekki vinnuskóli fyrir 2005 árganginn?