Tenglar

10. maí 2018 | Sveinn Ragnarsson

Vinnuskóli Reykhólahrepps -ábending-

mynd  husavik.is
mynd husavik.is

Minnt er á að það er tækifæri til að sækja um í vinnuskólanum til 15. maí.

 

Vinnuskóli verður starfandi sumarið 2018 frá 4. júní til og með 17. ágúst, með þeim fyrirvara að næg þátttaka náist. Unnið verður í tveimur lotum. Fyrri lotan verður 1. júní - 30. júní og seinni lotan 8. ágúst.-16. ágúst.

 

Rétt til starfa í vinnuskólanum hafa börn fædd 2002–2005, nemendur í Reykhólaskóla skólaárið 2017-2018 og/eða með lögheimili í Reykhólahreppi.

 

Helstu verkefni verða sem fyrr; garðsláttur og hreinsun opinna svæða svo og lítilsháttar viðhaldsverkefni, ásamt námskeiði sem snýr að vinnumarkaðnum, samskiptaverkefnum og fegrun á umhverfi. Mikið er lagt upp úr fjölbreyttum verkefnum á hinum ýmsu sviðum til að kynna fyrir börnunum fjölbreytni vinnumarkaðirns. Tómstundafulltrúi mun starfrækja leikjanámskeið fyrir börn fædd 2008-2012 samhliða vinnuskólanum og munu starfsmenn vinnuskólans aðstoða við framkvæmd undir handleiðslu tómstundafulltrúa.

 

Umsóknareyðublað er að finna á www.reykholar.is og á skrifstofu Reykhólahrepps. Hægt er að skila umsóknum á skrifstofuna eða senda á johanna@reykholaskoli.is. Umsóknarfrestur er til 15. maí. Athugið að foreldri eða forráðamaður þarf að undirrita umsóknina. Nánari upplýsingar í síma 698-2559/434-7880.

 

Vinsemd og virðing eru höfð að leiðarljósi í vinnuskólanum.

 

Launataxtar:

13 ára – fædd 2005    598 kr.klst.

14 ára – fædd 2004   690 kr.klst.

15 ára – fædd 2003    791 kr.klst.

16 ára – fædd 2002    984 kr.klst.

 

 Vinnutími: 5 stundir á dag, kl. 9:00 – 14:00.

 


  

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31