Tenglar

10. nóvember 2009 |

Vinnuþing Vatnavina Vestfjarða haldið á Laugarhóli

Vinnuþing Vatnavina Vestfjarða verður haldið á mánudag og þriðjudag, 16. og 17. nóvember, á Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði á Ströndum. Þar munu Vatnavinir kynna frumlegar hugmyndir og skissur af baðstöðum Vatnavina Vestfjarða, sem og annað frumkvöðlastarf og ýmsar pælingar. Þarna mætir breiður hópur fulltrúa fyrirtækja í ferðaþjónustu og sérfræðingar tengdir heilbrigðum lífsstíl. Ráðstefnan er opin öllum. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að koma og fólk er beðið að skrá sig fyrir lok fimmtudags. Mörg áhugaverð erindi verða flutt eins og sjá má af upptalningunni hér fyrir neðan. Meðal þeirra sem erindi flytja er Sólrún Sverrisdóttir á Reykhólum (sjá eldri frétt hér á vefnum: Úr brimi í bað - heilsusetur á Reykhólum). 

 

- Vatnavinir Vestfjarða, Sigrún Birgisdóttir og Viktoría Rán Ólafsdóttir.

- Hughrifagreining fyrir markaðsetningu: Sköpun sérstöðu, Sigrún Birgisdóttir og Sigurður Þorsteinsson.

- Opnun vefsíðunnar www.vatnavinir.is, María Sjöfn Dupuis Davíðsdóttir.

- Baðstaðir Vatnavina Vestfjarða: Kynning á hugmyndavinnu, Olga Guðrún Sigfúsdóttir og Sigrún Birgisdóttir.

- Óhefðbundnar lækningar við baðstaði Vatnavina, Náttúrulækningafélag Íslands.

- Jurtir og vatn, Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, Villimey.

- Þari, vatn og lækningamáttur, Sólrún Sverrisdóttir, Reykhólum.

- Ferðaþjónustan á Klængshóli í Skíðadal: Náttúra og heilsa, Anna Dóra Hermannsdóttir.

- Þemaferðir á Vestfjörðum: Arnlín Óladóttir og Magnús Rafnsson, Þemaferðir ehf.

- Gerð og markaðsetning ferða, Bertrand Jouanne, Ferðakompaníið.

- Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS, Hildur Björk Pálsdóttir.

- Námskeið og ferðir í tengslum við baðstaði Vestfjarða, Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir.

- Ferðamálastofa og Vatnavinir Vestfjarða, Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri.

- Eiginleikar vatns á Vestfjörðum og nýjar leiðir við hreinsun vatns, Sandra Grettisdóttir, Hásk. á Akureyri.

- Útflutningsráð og Vatnavinir Vestfjarða, Hermann Ottósson, forstöðumaður.

- Markaðsstofa Vestfjarða og Vatnavinir Vestfjarða, Jón Páll Hreinsson.

- Vatnavextir og tekjumyndun, Anna G. Sverrisdóttir.

- Ímyndarsköpun, Sigurður Þorsteinsson og Anna G. Sverrisdóttir.

 

Ráðstefnugestir greiða ekkert þátttökugjald en greiða hins vegar fyrir máltíðir og gistingu. Mikilvægt er að gestir bóki sig fyrirfram, annan eða báða dagana.

 

Nánari upplýsingar má nálgast hjá Viktoríu Rán hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða í síma 451 0077 / gsm 691 4131. Skráningar má hringja inn eða senda í tölvupósti á viktoria@atvest.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31