Tenglar

14. nóvember 2012 |

Vinnuverndar- og réttindanámskeið fyrir bændur

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands minnir á að síðasti skráningardagur fyrir Vinnuverndar- og réttindanámskeið sem haldið verður í Holti í Önundarfirði 22.-23. nóv. er á morgun, 15. nóvember. Jafnframt er fólk minnt á að líta á vinnuvélaskírteinið og athuga hvort það hafi réttindi á tækin sem notuð eru. Starfsmenn Vinnueftirlitsins geta veitt frekari upplýsingar um þessi réttindi.

 

Námskeið: Vinnuverndar- og réttindanámskeið fyrir bændur.

Endurmenntun LbhÍ í samstarfi við Vinnueftirlitið og Búnaðarsambönd.

 

Markhópur: Bændur, búalið og aðrir áhugasamir.

 

Lýsing: Námskeiðið veitir bókleg réttindi til að stjórna dráttarvélum í réttindaflokki (I) og lyfturum (J). Námskeiðið er hefðbundið vinnuvélanámskeið en er aðlagað að bændum. Sérstaklega verður fjallað um gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði (áhættumat starfa) á vinnustað og gerð æfing í því. Lagðir verða fram gátlistar fyrir bændur til að gera áhættumat. Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, myndum, myndböndum og verkefnum. Námskeiðið skiptist í 4 hluta:

 

1. hluti, fyrri dagur

  • Almenn kynning, lög, reglur og réttindi
  • Vinnuslys, atvinnusjúkdómar, persónuhlífar og líkamsbeiting
  • Börn og unglingar, vinna í lokuðu rými
  • Hávaði og lýsing. Hættuleg efni, notkun og geymsla.
  • Áhættumat fyrir bændur, gátlistar Vinnueftirlitsins o.fl.

(Hægt er að skrá sig eingöngu á 1. hlutann ef t.d. viðkomandi hafa vinnuvélaréttindi en hafa ekki farið í gegnum áhættumat og viðeigandi gátlista. Mikilvægt er að skrá sig og greiða 6.500 kr. á mann fyrirfram, sjá upplýsingar neðar.)

 

2. hluti, fyrri dagur

  • Eðlisfræði
  • Vökvafræði
  • Vélfræði
  • Rafgeymar
  • Öryggi við skurðgröft

3. hluti, seinni dagur

  • Dráttarvélar með tækjabúnaði og dráttartæki, minni gerðir jarðvinnuvéla (£4 t) í réttindaflokki (I)

4. hluti, seinni dagur

  • Lyftarar með allt að 10 tonna lyftigetu í réttindaflokki (J)

Námskeiðinu lýkur með skriflegu krossaprófi.

 

Ávinningur: Bókleg réttindi á vinnuvélar í réttindaflokkum (I) t.d. dráttarvélar og minni gerðir jarðvinnuvéla (£4 t) og liðléttingar, og (J) Lyftarar með allt að 10 tonna lyftigetu. Aukin þekking á vinnuverndarmálum og hvernig á að gera áhættumat starfa.

 

Til að ná fullnaðar I/J réttindum þarf að:

  • Sitja þetta tveggja daga námskeið og standast krossapróf í lok þess
  • Vera orðin/n 17 ára
  • Hafa gilt ökuskírteini
  • Hafa fengið þjálfun í notkun vinnuvéla með uppáskrift aðila með vinnuvélakennararéttindi
  • Óska eftir og standast verklegt próf
  • Sækja um vinnuvélaskírteini

Þeir sem áhuga hafa og uppfylla ofangreind skilyrði geta við skráningu á námskeiðið óskað eftir því að taka verklegt próf. Þeir einir sem ná krossaprófinu geta í framhaldi farið í verklegt próf. Ef viðkomandi er ekki tilbúin/n að taka verklega prófið eftir bóklega hluta námskeiðsins má taka verklega prófið síðar með aðkomu viðurkennds prófdómara frá Vinnueftirlitinu.

Eftir að viðkomandi hefur náð báðum námshlutum er hægt að sækja formlega um vinnuvélaskírteini með I/J réttindi til Vinnueftirlitsins.

 

Námskeiðið er styrkhæft úr Starfsmenntasjóði bænda - sjá vinnureglur sjóðsins á www.bondi.is

 

Leiðbeinendur: Starfsmenn fræðsludeildar- og vinnuvéladeildar Vinnueftirlitsins.

 

Verð kr. 34.000. Kennsla, kennslugögn og veitingar. Óski viðkomandi eftir að taka verklegt próf eftir námskeiðið kostar það aukalega kr. 4.760 á hvern réttindaflokk. Láta þarf ósk um slíkt fylgja skráningu og greiða á staðnum. Útgáfa vinnuvélaskírteinis kostar kr. 6.480.

 

Stund og staður (2 daga bóklegt námskeið, verklegt próf samkvæmt samkomulagi á staðnum): Fimmtudagur 22. nóv. kl. 10-17 og föstudagur 23. nóv. kl. 10-17 í Holti í Önundarfirði. Verklegt próf í Botni í Súgandafirði.

 

Skráningar: endurmenntun@lbhi.is. Fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og heiti námskeiðs. Eða hafa samband í síma 433 5000.

 

Eftir að skráning er móttekin er gengið frá greiðslu á staðfestingargjaldi með því að millifæra kr. 8.400 (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590, og send kvittun á netfangið.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31